Gróttuferð =D
Jæja, þá er loksins að koma að því. Við ætlum að fara út í Gróttu næstkomandi föstudagskvöld (21.nóv.), skella okkur í náttfötin og eiga frábæra stund saman. Sagðar verða draugasögur, gamansögur, flökkusögur, lygasögur og alls konar sögur! Við ætlum að fá okkur göngutúr um eyjuna með vitaverðinum okkar um nóttina og um morguninn förum við upp í vitann og kíkjum á útsýnið. Það var ROSALEGA gaman seinast og það verður örugglega enn skemmtilegra núna. Krístín er allavega orðin ferlega spennt!
Við hittumst klukkan 22:00 út á “tánni” þar sem hægt er að leggja sem næst gönguleiðinni út í eyjuna(leið 14 keyrir þessa leið). Það verður orðið fært aftur til baka klukkan 8:00 morguninn eftir en sennilega verðum við nú ekki svo snemma á ferðinni… verðum líklega að koma heim um hádegi? Allir mæta með eitthvað að drekka fyrir sig og svo leggjum við í púkk eitthvað til að narta í. Seinast var komið með heimabökuð möffins, smurðar flatkökur, víber og osta, brauð og pestó, nammi, snakk og fl. bara svona til að gefa einhverjar hugmyndir. Einnig þarf að kippa með sér svefnpoka en það eru dýnur á staðnum og munið að vera vel klædd elskurnar. Óþjóðbrókaðir þjóðfræðinemar borga 500.- (ef þið eigið dollara, evrur eða eitthvað verðmætara er það vel þegið í kryppunni….). Endilega skáið ykkur í kommentakerfið svo við getum gert okkur grein fyrir því hversu margir mæta.
Hlökkum til að eiga frábæra stund með ykkur! Kremjuknús og kossar, Þjóðbrækur.